info-matardagbok

 

Afgreiðslutími
  • Hægt er að sækja pantanir hjá Pixel í Ármúla 1 eða fá sent með Íslandspósti.
  • Afhendingartími Íslandspóst er 3 til 5 dagar.
  • Það er opið í Ármúla 1 á milli 8:00 og 16:00 alla virka daga.
Hvernig nota ég bókina?
Fyrsta blaðsíðan er fyrir upplýsingar um eiganda bókarinnar.
Þar er hægt að setja sér markmið.

Næst koma síður með upplýsingum og dagatal fyrir árið.

Síðan koma 18 blaðsíður með vikuplönum þar sem hægt er að skrá hvað verður í matinn, ásamt innkaupalista og hugmyndum.

Loks koma svo 124 blaðsíður til að skrá þyngd, svefn og hvað þú borðar.Þar ertu með dálka fyrir magn, kaloríur, fitu, kolvetni og prótein.Það er pláss fyrir 22 skráningar yfir daginn, með samantekt fyrir hverja máltið og samtals dálki neðst. Einnig geturðu merkt við hversu mikinn vökva þú drekkur og svo er smá svæði fyrir eitthvað sem skiptir máli.

Úr hverju er hún búin til?
  • Kápan er þykk og matt lamineruð.
  • Það er 115gr. mattur pappír í innsíðunum sem er gott að skrifa á.
  • Gormurinn í bókinni er viljandi hafður stór svo hægt sé að geyma nettan penna í honum. Passaðu þig samt á því að opna hann ekki því þá detta síðurnar úr bókinni.
Viltu vita meira?
  • Bókin er smíðuð og uppfærð með tillögum frá næringarfræðingum og áhugafólki.
  • Við ætlum að gera þessa bók eins góða og hún getur orðið fyrir alla.

Karfan þín (0)

Karfan þín er tóm
FARA EFST